23.4.07
Ný byrjun


by Anna S. at 13:21
Gerðu athugasemd...  

2.3.07
Ég mæli með...

.... myndinni The last king of Scotland. Forest Whitaker átti Óskarinn svo sannarleg skilið. Lúmskt fyndin mynd en um leið ótrúlega átakanleg. Ég mæli með því að fólk loki augunum í tveimur atriðum í lok myndarinnar, ég þurfti þess allavega.


by Anna S. at 14:06
Gerðu athugasemd...  

27.2.07
22

Þessi síða er alveg að gefa upp öndina, vegna þess að hún er svo óóógeðslega lengi að hlaða sig og líka vegna andleysis bloggarans.

Ég er allavega orðin árinu eldri. Tíminn líður svo hratt...! Það er ár síðan ég hélt uppá 21.árs afmælið mitt eftir 3.vikna Fillipseyjareisu. Það eru 4 ár síðan ég hélt uppá 18.ára afmælið mitt á skíðum í frönsku ölpunum. Það eru 16 ár síðan ég hélt uppá 6.ára afmælið mitt og fékk fyrsta hjólið mitt. Já svona er maður nú orðinn gamall! :o)

Maður er búinn að vera að dunda ýmislegt að undanförnu. Við Kristján fórum í leikhús í síðustu viku, ástæðan var sú að Kristján fékk leikhúsmiða í jólagjöf frá vinnunni. Og viti menn, hann skemmti sér bara konunglega. Mér finnst alltaf gaman að fara í leikhús! :) Á laugardaginn var farið í smá búðarleiðangur (og eytt annara manna peningum) og aðallega bara legið í leti. Maður naut þess að segja "ég á afmæli í dag" til að fá sínu framgengt, eins og t.d. við að útkljá hver ætti að vaska upp og svoleiðis! :) Mamma og pabbi gáfu mér afar kærkomna safapressu þannig að stór hluti dagsins fór í að pressa safa eins og geðsjúklingur! :o) Um kvöldið fórum við svo út að borða og í bíó. Á sunnudaginn kíktum við á skauta og var það í fyrsta skipti sem Kristján fór á skauta. Ég kveið nú svolítið fyrir því og ætlaði ekki að þekkja hann þegar við kæmum á svellið. En strákurinn stóð sig nú bara ótrúlega vel og datt bara tvisvar! :) Við skautuðum nokkra hringi og fengum okkur svo góðan göngutúr og kíktum í Húsdýragarðinn.


by Anna S. at 16:17
Athugasemdir (1)  

18.2.07
*gubb*

Ój ég lagðist í viðbjóðslegustu ælupest í heimi um helgina! Ég hef alltaf sloppið þegar þetta hefur verið að ganga... en nei ekki í þetta skiptið! Og það versta við þetta allt saman var að ég var ein heima! :(  Kristján var fyrir austan... en honum er fyrirgefið, þar sem hann var svo ótrúlega mikil elska á Valentínusardaginn! :) Hlakka til að sækja hann á flugvöllinn í kvöld, knúsa hann og taka hann með mér heim svo hann getið hugsað um konuna sína, það er jú einusinni konudagurinn í dag.  

Úff en sem betur fer gekk þessi ógeðslegi æluviðbjóður yfir mjög hratt! Ældi á hálftíma fresti allan seinnipart föstudagsins og svo var það að mestu búið (og ég líka búin). Fékk frí í vinnunni í gær til að jafna mig, en gat samt ekki mikið borðað. Mætti svo fersk í vinnuna í dag. Nú langar mig mest af öllu að stökkva inní hagkaup og kaupa mér bollur fyrir bolludaginn á morgun... þó ég eigi örugglega ekki eftir að geta borðað þær!

Mikið rosalega er ég samt ánægð með úrslit eurovision. Í fyrstu þá fannst mér öll eurovisionlögin glötuð! En svo sá ég tvo lög sem gætu verið góðir fulltrúar í þessa keppni, "Ég les í lófa þínum" og "Þú tryllir mig". Öðruvísi lög sem gætu átt sjens. Þegar ég sá atriðið hans Eiríks fyrst þá hugsaði ég bara með mér "oh guð... á hvaða áratug erum við"? Hann fékk sitt tækifæri árið 1986. Ég hugsa þetta reyndar í hvert skipti sem ég sé svona atburði eins og undankeppnina í eurovision eða til dæmis X-factor, þá er ég stundum ekki alveg viss hvaða áratugur er. Ég skil nefnilega ekkert í tískunni núna (eða bara almennt). Allavega, langflottasta lagið sem vann, flott að fá svona rokklag.. greinilegt að íslendingar hafa ágætis smekk.


by Anna S. at 14:12
Gerðu athugasemd...  

14.2.07
14. febrúar

Sem þýðir:
  • Valentínusardagur
  • Tíminn flýgur
  • Strax komið ár síðan ég var á Filippseyjum!
  • Afmæli eftir 10 daga
  • Frí eftir mánuð
  • Big Smile

by Anna S. at 11:58
Gerðu athugasemd...  

13.2.07
Er Jude Law á Íslandi?

Afhverju var ég ekki látin vita?

Og hvaða paparazzi var á Keflavíkurflugvelli að taka myndir af honum? Ef Hollywood stjörnurnar eiga að fá frið einhversstaðar þá er það á Íslandi!!!
 

by Anna S. at 20:14
Athugasemdir (1)  

9.2.07
Jey!

Helgarfrí - þvílík sæla! :)

Mig langar ótrúlega mikið á skíði!! Sólin, snjórinn og fuglasöngurinn útí garði hafa þessi áhrif á mig! Mér líður eins og það séu páskar og það sé að koma vor...

Var á kynningu í Alþjóðahúsinu áðan. Ótrúlega fróðlegt og mjög öflugt starf sem þar er unnið. Í tíma í morgun var svo fjallað um málefni innflytjenda sem er vissulega mjög heitt umræðuefni fyrir kosningarnar í vor. Ég er hér með búin að ákveða að málefni innflytjenda fái hug minn og hjarta í rannsóknarritgerðinni þessa önnina. Athyglisvert efni, ekki síst eftir mannréttindaumræðurnar síðustu vikurnar. Í Körlunum er ég ekki síður með skemmtilegt efni, er komin á fullt í ritgerð um feður á Íslandi og fæðingarorlof. Athyglisvert, og alltaf nóg að gera.


by Anna S. at 13:56
Gerðu athugasemd...  

6.2.07
...

Oh litla stolta frænka mín sem er nýorðin 6 ára er mesta krútt í heimi. Maður fær sko aldrei nóg af henni! Það þarf svo lítið til að gleðja þessi kríli og síðan láta þau útúr sér hvern gullmolann á fætur öðrum! Big Smile

Þau gömlu eru komin heim eftir frábæra ferð til Kúbu. Í gær gerði ég ekkert annað en að hlusta á ótrúlegar ferðasögur og vera öfundsjúk. Í gærkvöldi fórum við svo út að borða, ótrúlega góðan mat en þjónustan á þessum ónefnda veitingastað var ekkert frábær. Enda gerði pabbi heiðarlega tilraun til að brenna pleisið þegar hann kveiki í servíettu og þau hjónin gátu ekki verið sammála um hvort þau ættu að kæfa eða drekkja eldinum. Shocked


by Anna S. at 18:13
Athugasemdir (1)  

Don't buy Vista Security
Next Page
~ Um mig ~


Nafn: Anna
Fæðing: 24.02.85
Stjörnumerki: Fiskur
Heimili: Vesturbærinn
Atvinna: Nemi í HÍ


~ Dagatal ~

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


~ Linkar ~


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




RSS Atom
rss feed


Credits

Basic HTM:: Randomness
Image:
GettyImages
Graphic:
Dillon
Quote: author unknown


BLOGDRIVE
TEMPLATES
Rosey Love

Blogdrive